Ađalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Íslenskir útlendingar

Nýtt blogg !!!!

23. mars 2007 klukkan 18:48
ÉG ER FLUTT ENNN OG AFTUR ...

www.123.is/eyglodogg sjáum hvernig kellllunni miðar þar, hver veit nema ég hangi eitthvað lengur hér líka ....

Góða stundir

E. Dögg

ÁFRAM LIVERPOOL :) :) :)

22. mars 2007 klukkan 00:32
 
 
 
Jæja ég er vöknuð til lífsins! 

Maður er bara alveg bugaður eftir að vera komin á þennan aldur, en það jákvæða er samt að það styttist óðum í 65 ára regluna.

En annars var afmælisdagurinn frábær, fullt af beauty pökkum og kveðjum og svona!  Takk takk fyrir það sæta fólk!
 

Hvað á maður svo að segja...
 
Búin að vera að vera frekar dugleg í skemmtanalífinu, óvissuferð með Stofunni, Sálin á NASA, Rauðahúsið, þorrablót, Ungfrú Suðurland og ábyggilega hellings meir, var einmitt farin að pirra mig á því að vinnan væri farin að slíta svo í sundur frí-ið hjá manni, maður getur ekki stundað skemmtanlífið nema með fullkominni skipulagningu, hehehehe. 

Ársártíðin hjá Fangelsismálastofnun er svo á laugardaginn og verður það síðasta tjúttið í bili hjá kellingunni!!!!!!!!!!! 
 

En annars er það jákvæða í þessu öllu saman að ég er komin með æfingarfélaga í Styrk, sem er hún Lilja mín og váááá hvað við erum orðnar mjóar, fengum okkur einmitt þeyting upp á það eitt kvöldið sem er náttúrlega rétti andinn. 
Svo er hún Sigga að koma aftur úr veikinda/húsmæðra orlofi svo að þetta verður alveg geggjað speggjað þarna í ræktinni. 

En nú er klukkan orðin svo margt svo að ég ætla að fara sofa enda nenni ég ómögulega að bulla meira.
 

Góða nótt svínin mín
 

E. Dögg.
 

Já og meðan ég man... farið varlega, flýtið ykkur hægt því að lífið er svo ótrúlega stutt !
 

Ég get allt ég tvítug er í dag, ég nenni ekki neinu !

02. febrúar 2007 klukkan 07:30
Bara að minni ykkur á að ég á afmæli í dag og það væri voða gott að fá KNÚS og KOSS frá sem flestum Koss
 
              Ykkar Eygló Brosandi

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér og ekki fć ég miklu ráđiđ um ţađ hvert hann fer !

30. janúar 2007 klukkan 01:35
Heil og sæl til sjávar, sveita og geita!

Spurning um að fara að gera eitthvað af viti, það er nú einu sinni komin mánudagur og slappleiki helgarinnar herjar ennþá á mig!  Kannski að maður hafi átt hann skilið eftir stífa drykkju... maður spyr sig auðvitað !!!

Þetta blogg mitt er nú ansi mikið farið að snúast um skemmtanir og aftur skemmtanir, ég fer í það að hugsa minn gang svona hvað úr hverju... en ekki strax á meðan þetta er ennþá skemmtilegt.

En annars var þorrablót um helgina á Eyrarbakka, sem sumir vilja kalla nafla alheimsins, en það er bara smá hluti , svo við skulum bara láta það liggja á milli hluta.

En þetta var stórskemmtileg skemmtun, vinnufélagar í nefndinni og stóðu sig stórkostlega í leik sínum, spurning um að Óli Stínu og Gummi fá ekki bara samning eftir þetta og Hraunið tapi þeim.
En þó að maður væri ekki inn í öllum bröndurum, þá náði maður nú húmornum við megninu af þeim.  Aldrei að vita nema maður kaupi sér bara eitt stykki vespu og flytji á Bakkann, það er víst voða hipp og kúl þar !!!! HEHEHE

En annars ekkert meira um þetta að segja, en ég mæli eindregið með skemmtun sem þessarri, takk takk fyrir skemmtunina þið sem voruð þarna  og ekki gleyma hljómsveitinni SÍÐASTI SÉNS, spurning um að panta hana 2. febrúar 2008 þegar litla stelpan verður þrítug, kannski það muni bara eiga við... Hver veit
J

En ég tími því nú varla samt í skiptum við Leoncie, hún er náttúrlega óborganlegur listamaður eins og hún sannaði á Kaffibarnum um árið, þó hún hafi mæmað með röngu lagi, en sennilega er hún alltof dýr, ég sé til hvernig gengur að safna, frjálsframlög vel þegin
J
 En annars eru komnar  myndir síðan á stelpukvöldinu 13. janúar og þorrablótsmyndir.  Njótið velJ Seee yaaaaa!;)

 Og muniði svo öll að knúsa mig fast á föstudaginn Koss


Já og Anna Sigga mín... Hvar ertu ???????????

   

Liverpool - Mancester !!!

16. janúar 2007 klukkan 02:51
 
Sæl sæl elsku rassgötin mín!

Skemmtileg helgi að baki þó ég hafi þurft að skreppa á Pakkhúsið í gær og sækja hluta af dótinu mínu, hefði samt viljað að allt hefði skilað sér en maður er víst ekki alltaf heppin.
En málið með þetta er neflilega frekar undarlegt, því að ég hef alltaf verið með útroðna tösku, sem flestir af mínum vinum og starfsfélögum hafa ósjaldan tekið eftir, jú því í mínum huga er taskan mín heimilið mitt. Sá þessa svona líka fínu risa stóru tösku í vinnunni í Central á laugardaginn og ákvað að fjárfesta í henni þar sem að ég kaupi mér nú aldrei neitt AHAHAHAHAHAHA
Allt passaði svona voða vel í nýja heimilið og fór ég því sátt heim með nýju fjárfestinguna... nema hvað að stór hluti heimilisins varð eftir á Pakkhúsinu svo að ég þurfti að kíkja þangað frekar skömmustuleg í gær svo að mubblur heimilisins gætu fengið sinn stað að nýju.

En að öðru... allt komið á fullt í Styrk. Búin að plata Siggu og Lilju með svo að þetta er ótrúlega skemmtilegt allt saman. Við Lilja fórum einmitt á útsölu í Intersport á föstudaginn og löbbuðum út úttroðanar af svölum sportfatnaði. Ætluðum svo að tjútta um kvöldið en vorum alltof miklir íþróttagarpar til þess svo að við geymdum það bara fram á laugardag.
Enda var það assgoti gott... héldum stelpupartý með Singstar og túrban þema. Ótrúlega skemmtilegt kvöld í heildina, þó að maður geri alltaf eitthvað sem maður vildi frekar sleppa, kannski að það sé bara of mörgum ölkrúsum að kenna, hvað veit maður. já og meðan ég man, takk stelpur fyrir að leyfa mér að taka gelgjulagið mitt þrisvar. Og muniði... ég vann ykkur allar HAHAHA LALALA

Myndirnar af þessu kvöldi eru vonandi væntanlegar sem fyrst, því eins og er þá er ég svo upptekin þessa dagana að nenna engu.

En ég er að missa af einu afar mikilvægu...
Í ÖLÆÐINU Á LAUGARDAGINN SAGÐI ÉG SKILIÐ VIÐ POOLARANA OG ER KOMIN Í RAÐIR MANCESTER FOLANNA, Cristiano Ronaldo þjarmaði svo að mér ásamt Siggu og Lilju að ég gat bara ekki svikið þau (sjá mynd efst).
Mér sem fannst svo töff að vera Poolari, hver veit... kasski ég snú aftur í þeirra raðir, því maður á víst ALDREI AÐ SEGJA ALDREI eins og ég hef reynt að temja mér svo ljúflega.

En annars er þetta gott í bili, lífið er eins dásamlegt og hægt er, ef maður nær að láta ekki böggið hrinda manni niður, því ég er í Styrk og get því heldur betur ýtt hressilega við því í staðinn.
Lalala, þarna er ég nú soldið djúpur enda elska ég DJÚPUR.

Knús EYGLÓ DÖGG

Nýtt og spennandi ár í vćndum !!!

05. janúar 2007 klukkan 03:32
 
Góða kvöldið elskurnar mínar og gleðileg jól, já og gleðilegt ár og takk fyrir það gamla !

Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, held ég sé að detta í árin 25 á nýju ári.  En það tekur því ekki annars að stressa sig fyrir þessar hátíðir, þar sem að þetta er búið áður en maður veit af.  Jólin voru frekar skrítin þetta árið, þar sem ég var að vinna, en ég hef aldrei áður unnið á aðfangadagskvöld.  Var ægilega sessý í fangavarða dressinu á Hrauninu þegar jólin hringdu inn og borðaði jólamatinn með vinnufélögunum í matsalnum, eitthvað sem maður er ekki vanur, en þetta var nú samt alveg ótrúlega vinalegt. 

Kíkti svo á ball á annan sem var bara þokkalegt, en alls ekki meira en það. 
 Svo kom runa þarna rétt á eftir, en minni samt á að áfengi var í algjörum minnihluta, þar sem að áramótin lenntu á vinnuhelgi :   Ø                  29. des... matarboð fyrir Stofuna hjá Skúla, en ENGIR MAKAR, jahá hann Skúli er alveg ótrúlega séður.  Ahahahah. 

Ø                  30. des... Bjórflóð á Rauða, fullt af fólki og alveg þræl gaman, fullt af sætum fangavörðum :-)  Nú hlýt ég að vinna mér inn einhver rokkprik.

Ø                  31. des... Áramót, fjölskyldan fram yfir miðnætti og svo heimboð/partý hjá Ástu og Tóta. Stór skemmtilegt hjá þeim gömlu.  Ákvað samt að láta mig hverfa þegar stelpurnar voru komnar með í vörina.  Svo að nú er bara aðhaldið hafið að nýju með hörku í Cheerios kúrnum hehe, nei nei, manni veitir nú ekki af að hrista aðeins upp í hollustunni, enda konfektið og jólaölið búið. En annars vil að þakka fyrir frábært ár, kynntist helling af nýju og skemmtilegu fólki og mér finnst ég forrík af því, því vinirnir eru manni allt í lífinu, væmið... en fullkomlega rétt :-)  Og þeir vinir sem ég hef lítið hitt... hef tröllatrú á að nýja árið bæti úr því. Munum svo bara að vera sæt, góð og jákvæð eins og við getum, þetta er að minnstakosti mín stefna :-)  Gera það sem við viljum og hlusta á okkur sjálf...EKKI SATT ?????   Það ætla ég að gera, enda held ég að nýtt ár verði mér í hag :-)  Ahahahaha 
EIN AÐ MISSA SIG Í JÁKVÆÐNINNI
 En annars er ég að lenda í því að geimverur eru að koma til jarðar og brottnema allt fallega og sexy fólkið, ég vil bara segja bless og enn og aftur gleðilegt nýtt ár áður en þær ná í mig :-)                             
                         Eygló

Liverpool er máliđ !

04. desember 2006 klukkan 01:09
Sæl sæl öll ! 

Nú eru aðeins þrjár vikur til jólaHlæjandi

En núna er allt að gerast í próflestrinum því að sjálfsögðu ætlar stelpan að massa þessi próf sín.  Held samt að ég hafi aldrei verið beðin um að vinna eins mikið og akkurat núna þegar maður hefur engan tíma.  Gott maður á ekki mann, maður þyrfti sennilega að panta frystipláss fyrir hann þangað til um áramót.  

En annars var ég næstum því farin að grenja núna fyrr í vikunni.  Hún Ásta mín er neflilega flugfreyja hjá Icelandair og bauð mér með sér til Madrid yfir helgina fyrir smá klink.  Ég fór af stað og sá að ég þyrfti að redda vinnuhelginni minni sem hefði svosem ekki verið neitt stórmál, nema hvað... ég ákvað að kíkja á meilið mitt líka svona til tilbreytingar og ... vegna þess að ég er utanskóla þurfti ég að skila einni tímaritgerð, taka eitt próf og skila 3 verkefnum á föstudaginn.  Djöfulsins tossi getur maður verið.  Þannig að vegabréfinu var bara komið fyrir á sama stað og áður og auðvitað rokið í slæmt skap.   Þetta hefði verið geggjað gaman, en við vinkonurnar stefnum á þetta aftur fyrr en síðar svo að ég nenni ekki að grenja mikið yfir þessu lengur.
 

Svo gerðist annað ansi hreint skemmtilegt um daginn!!!!!!!!!!!!!!!!! 
Þar sem ég var að læra og spjalla aðeins við hana Siggu mína á MSN ákvað ég að ég þyrfti nú að finna mér lið í enska boltanum svona til að vera með í umræðunni.  Mér finnst svo ótrúlega skemmtilegar svona háværar umræður um liðið “SITT”, þannig að fyrst að Lilja og Sigga héldu með Man. Utd en Haukur með Liverpool ákvað ég að vera eins og Haukur og gerast poolari.  Fékk upplýsingar um liðið hjá Siggu með herkjum því að þetta lið væri svo ömurlegt, ljótir gaurar og svona.  Ég varð bara spenntari við þetta, sem er fyndið því að ég hef meira en ekkert vit á þessu.  Eftir smá stund kom Lilja inn og eftir örlítið spjall sagði hún einmitt að Liverpool væru aumingjar og sennilega hommar líka.  Loksins loksins kom að þessum heitu umræðum um enska boltann, ég er búin að nota allar lærdómspásur í að kynna mér liðið og er orðin fastagestur inn á  www.gras.is .  Og gott ef að CARLSBERG er ekki orðin uppáhalds bjórinn minn. 
En ég á ótrúlega langt í land með þetta nýja áhugamál en auðvitað reyni ég eitthvað á hverjum degi að leggja rækt við það.
TAKK TAKK SIGGA MÍN FYRIR AÐ GEFA MÉR ALLAR ÞESSAR UPPLÝSINGAR UM NÝJA LIÐIÐ MITTUllandi
En þó að Sigga hafi verið ósköp indæl í þessu kom upp einhver fótboltakóngur í hana þegar hún var að reyna að ljúga að mér að einhverjir Man.Utd dúddar væru Liverpool.  Það fannst mér afar ljótt, en þar sem hún Sigríður er nú ekki illa innrætt þá endaði þetta allt í góðu. 

En annars er þetta orðið gott í bili.  
 

Ætla að fara að græja mig fyrir næturvaktina.
 
  
Heyrumst eftir próf.
 
Knús Eygló Dögg “POOLARI” Svalur

Ég er loksins orđin skáti, sit heima og hnýti skátahnúta :-)

26. nóvember 2006 klukkan 22:57
Góðan daginn gott fólk! 

Þá eru aðeins 28 dagar til jóla og ennþá styttra þangað til að skórinn verður settur í gluggannHlæjandi  En jólaskapið fær ekki að gera vart við sig hjá mér fyrr en prófin eru búin.  Það er þá í kringum 11. desember sem ég fer að raula jólalögin. 

En annars er allt það sama hjá prinsessunni, vinna, skóli, lesa, skrifa ritgerð og svona allskonar skemmtun.


Fór um síðustu helgi í 25 ára afmæli hjá honum Hauk.  Asskoti skemmtileg skemmtun það og að sjálfsögðu náði ég nú ekki að halda mér þurri eins og planað var.  Fullt af skemmtilegu fólki, hellingur af bjór og sona að ógleymdu Singstar þar sem að maður var náttúrlega ósigrandi.  Jamm Sigga... við erum alveg ótrúlegar stjörnur... gott að við gefum öðrum tækifæri í IDOL og X-FACTOR heheHlæjandi
Svo var skellt sér á pakkhúsið síðasta klukkutímann. 

Missti af jólahlaðborðinu með Stofunni þar sem að ég var að vinna Fýldur


En næsta helgi var svona snúruhelgi (hékk skrjáfþurr á snúrunni), enda alveg komin tími á það.
Föstudagskvöldið fór í ritgerðasmíð, var svo kölluð út í vinna um eittleytið á Hrauninu og yfir nóttina, þannig að þetta var alveg hreint ágætis skátakvöld.  Vann svo með henni Rakel minni í Central á laugardeginum og fór svo um kvöldið í stelpu-hittings með kvennstarfsmönnum Hraunsins hjá Boggu.  Alveg geggjað gaman, mikið hlegið og mjög flott boð hjá stelpunni. 
Kíkti svo á Krús eftir það en gömlu fastakúnnarnir voru að hittast þar.  Missti reyndar af því en hitti stelpurnar allar og skellti mér með þeim á Pakkhúsið. 
Það er alveg ótrúleg skemmtun að fara svona allsgáður þangað inn, fullt af fólki og assskoti skemmtó að fylgjast með þessu.  Samt fyndið þegar fólk fer að spjalla við mann eins og alltaf þegar maður fer þangað, en þegar það kemst að því að maður er ekki að hella í sig, dregur það sig flest til baka.  Hehehe held ég hefði ekkert skemmt mér betur drukkinn.  
 


En annars er lítið annað uppi þessa dagana nema að reyna að læra eitthvað, þar sem að það hefur einhvernvegin orðið undir þessa önnina Öskrandi


 
Verið hress og kát Brosandi 

Kv.  Eygló sæta Koss

Smá ţynnkublogg ! !

13. nóvember 2006 klukkan 04:53
Það verður nú ljúft að vakna í fyrramálið, vonandi alveg eld spræk og án þynnkuÖskrandi  Ætli svona típískir dagar eins og dagurinn í dag kenni manni ekki eitthvað.  Alveg er það príðilegt að maður helli ekki í sig oftar.  En dagurinn í dag er semsagt búin að vera alveg ótrúlega erfiður.  Eða í stuttu máli er ég búin að vera að mana mig í allan dag í það að standa upp úr rúminu, fara í sturtu og borða og ótrúlegt en satt þá tókst það núna seinnipartinn í kvöldSkömmustulegur En annars fylgir yfirleitt alltaf jákvætt öllu þó stundum sé erfitt að finna það.  En það jákvæða er að það var geggjað gaman í gær.  Fór í afmælið hjá Guggu og Lalla á Kríu-kránna og fór svo á Bjórbandið á Pakkhúsinu.  Tók 150 myndir sem að fá mann bara til að komast í gott skap aftur (ANNA MAGGA... kannski set ég eina inn af MÉR við tækifæri) heheHlæjandi Þannig að ég sé það núna að þynnkan er ekkert til að væla né skæla yfir þar sem að ég skemmti mér alveg brill.  Bið alla þá afsökunar sem ég var með dónaskap og stæla við því ég elska ykkur öll Koss
MUNIÐI ÞAÐ.
Annað afmæli er svo á laugardagskvöldið, hjá honum Hauk og að sjálfsögðu ætla ég að vera skrjáfþurr þar, spurning hvort það sé of snemmt að ákveða það núna þar sem að það er jólahlaðborð á föstudagskvöldið hjá Stofunni, en það kemur þá bara í ljósÓákveðinn En annars er allt svipað hjá prinsessunni, skóli og Hraunið. 
Sem minnir mig á það að ég þarf nú að fara að sökkva mér ofaní SJÁLFSTÆTT FÓLK.
Því að ekki nýttist dagurinn í dag í það (rím)Saklaus 
En ég er að spá í að fara að hætta þessu blaðri og fara að gera eitthvað af því sem ég á að gera.

Hafið það sem allra allra best, passiði ykkur á bílunum og ekki lenda í jólastressinu því að það fást úrvals piparkökur í BónusUllandi

Knús til ykkar allra og líka ykkar sem knústuð mig ekki í flensunni í dagGráta               
           Eygló
 

ELSKU SIGRÚN ARNA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN !

Brostu og allur heimurinn mun brosa međ ţér. Gráttu og ţú verđur blautur í framan

03. nóvember 2006 klukkan 07:41
Helgarfrí ! ! !  

Jamm helgarfríið er brostið á Svalur
Ótrúlega góð tilfinning að vera komin í smá frí, en þá er spurning . . . ég er víst í skóla og ágætis tilbreiting væri nú hjá prinsessunni að fara að sinna honum svona aðeins.  Hafði það nú af að klára fyrsta hlutann í “SJÁLFSTÆÐU FÓLKi” eftir Laxa gamla áðan, enda ekki seinna vænna þar sem að prófið er í fyrramálið já og svo er víst próf úr næsta hluta á mánudaginn . . . la la la la la ok ok ég er víst ekkert að fara inn í mjög spennandi helgarfrí. 
En svo litið sé á björtu hliðarnar svona einstakasinnum þá er skemmtileg helgi framundan, hártrít (soldið sona langt síðan tími á það kom) en ég hlýt þá bara að verða alveg einstaklega fríð eftir það. 
Litun og plokkun líka, er orðin eins og
Gallagher-bræðurnir Liam og Noel . . .  semsagt miður fallegt ef við miðum til dæmis við kvennmann.
En annars er það helst uppi að það er sviðamessa hjá fangavörðum á Hrauninu í Hliðskjálf á laugardagskvöldið svo að maður verður nú að passa sig að vera ekki alltaf eins og útigangshross til fara, sumir yrðu mun sáttari ef ég líktist íslensku sauðkindinni eins og gerðist í dag ( já já það framkallast alveg ótrúlegt magn af krullum í kollunni minn í svona úrkomuógeði eins og var í dag:-/ )  
En svo er víst dansiball á laugardagskvöldið líka svo að það er aldrei að vita hvert maður hendist eftir að vera búin að “feisa” litlu lömbin verst að Rósa heitin hans Bjarts í Sumarhúsum át hana Gullbrá, annars hefði ég alveg verið til í að narta í hana
(aha ég er búin að vera að lesa “SJÁLFSTÆTT FÓLK”). 
En annars held ég að þetta verði að duga í bili þar sem að ég ætla að fara að lúlla mér því annars étur skammdegisþunglyndið mig upp til agna eins og úlfurinn gerði við ömmu hennar Rauðhettu, muniðiiii.
En MUSE-draumaprinsinn minn hann Matthew James Bellamy Koss Glottandi Hlæjandi Ullandi 
ætlar að syngja mig í svefn með Unintended” svo ég verð að hætta.
 

Eygló
sæta (á laugardaginn) Hissa